|
|
Velkomin á vefinn útinám.is!Vefurinn útinám.is/utinam.is er eign Áskorunar ehf. en vefsíðan er samvinnuverkefni milli Áskorunar ehf. og SNÚ - Samtaka um náttúru- og útiskóla.
utinam.is | 19. maí 2008 Að læra úti, það er málið!Námsstefna um útinám tókst feykivelFimmtudaginn 15. maí var haldin námsstefna um útinám á Sauðárkróki. Um hundrað þátttkendur komu til þess að hlýðá á fjölbreytt erindi um útinám og skólastarf og taka þátt í útieldun og umræðum. Góður andi var á námsstefnunni og var mál manna að hún hafi tekist einkar vel. Á dagskrá voru erindi um útinám frá öllum skólastigum. Ólafu Proppé rektor Kennaraháskóla Ísland setti námsstefnun með ávarpi þar sem fjallaði um mikilvægi þess náms sem á sér stað úti og tengdi m.a. við persónulega reynslu sína af skáta- og björgunarstörfum. Guðrún Þóra tengdi útinám, ferðaþjónustu og nám í háskóla skemmtileg saman. Björg Pétursdóttir fjallaði um náttúrufræði tengd umhverfi framhaldskólanema. Hún fléttaði saman umfjöllun um námsskrá og þróunaráfanga í jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Kristín Einarsdóttir sagði frá ferðalögum í Smáraskóla og Jakob gerði grein fyrir rannsókn sem hann er að gera á hálendisferðum skólans. Ingibjörg Stefánsdóttir leiddi námsstefnugesti inní leikskólann Álfheima á Selfossi þar sem markvisst er unnið með útnám. Vanda varpaði svo kastljósi á tengsl barna við náttúruna og hvernig þau hafa minnkað á liðnum áratugum. Á námsstefnunni var rík áhersla lögð á útieldun. Guðmundur Finnbogason heimilisfræðikennari var með sýnikennslu í útieldun þar sem m.a. var madreidd frönsk kjötsúpa, kakó, fiskur í dagblaði, eggjakaka og poppað. Einnig kynnti Þorsteinn Fjalar Þráinsson vörur til úteldunar frá Muurikka og Kristleifur kynnti ratleikjabúnað frá Rakó ehf. Skúli Skúlason rektor Hólaskóla sleit námsstefnunni með hvetjandi hugvekju um hlutverk útinámsins í leit mannsins að skilningi á veröldinni. Myndir frá námsstefnunni má sjá hér. Námsstefnan var haldin af Kennaraháskóla Íslands í tilefni af 100 ára afmæli skólans í samvinnu við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Farskólann – miðstöð símenntunnar, Hólaskóla – háskólann á Hólum og grunn- og leikskóla í Skagafirði. Styrktaraðili námsstefnunnar var Kaupfélag Skagfirðinga. Skipuleggjendur námsstefnunnar voru Jakob F. Þorsteinsson meistaranemi við KHÍ og Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við KHÍ. Siglingaklúbbur stofnaður á SauðárkrókiNámskeið fyrir börnSiglingaklúbburinn Drangey var stofnaður 5. maí 2009. Klúbburinn verður með aðstöðu hér á vefnum utinam.is til að byrja með. Í raun eru siglinar öflug útinám sem gefur kost á fjölbreyttum og öflugum námstækifærum. Málþing Námshesta um útikennsluKúludalsá í Hvalfjarðarsveit 29. apríl kl. 14:00Málþing um útikennslu verður haldið á vegum Námshesta að Kúludalsá í Hvalfjarðarsveit miðvikudaginn 29. apríl n.k. og hefst það kl. 14:00. Dugi húspláss á bænum ekki verður fundinn annar staður í grennd og þátttakendur látnir vita í tíma. Fyrsti aðalfundur Samtaka náttúru- og útiskóla (SNÚ).27. mars í Elliðavatnsbænum í Heiðmörk kl. 12:30-16:00Boðað er til fyrsta aðalfundar Samtaka náttúru- og útiskóla (SNÚ).
Fundurinn verður haldinn í Elliðavatnsbænum í Heiðmörk kl. 12:30-16:00 þann 27. mars nk.
Auk aðalfundarins eru á dagskránni fræðsluerindi og vinnustofur, sem fara fram utandyra í fundarlok. Fjallaskóli Ferðafélags ÍslandsÁhugaverð útivist fyrir ungt fólkFjallaskóli FÍ er fyrir unga fólkið en mikil áhersla eru um þessar mundir lögð hjá Ferðafélags Íslands á að efla starf fyrir ungmenni. Ákveðið hefur verið að fara af stað í sumar með ungmennaverkefni með ýmiskonar fræðslu og ferðalögum. Skíðanámskeiði fatlaðra í Hlíðarfjalli 13. - 15.Skíðanámskeið ÍF og VMÍÚtinám er fjölbreytt svið þar sem allir eiga að geta tekið þátt. Stundum hefur erfiðlega gengið að gefa börnum með fötlun kosta á að taka þátt og gílíma við áskoranir. Mjög athyglisverður kynningarfundur og námskeið um skíðamennsku og útvist fatlaðra er fyrirhugað um miðjan febrúar á Akureyri.
Spennandi málþing í gangiNEED – Northern Environmental Education Development-projectNú er í gangi fjölþjóðleg málþing hér á landi um jarð-fræðslu.
Málþingið er hluti af fjölþjóðlegu samstarfsverkefni um þróun náttúruskólastarfs, rannsóknarmiðaðrar umhverfismenntar, fullorðinsfræðslu um sjálfbæra þróun og uppbyggingu fræðslutengdrar ferðaþjónustu í grannbyggðum Vatnajökulsþjóðgarðs.
Áhugaverðar ráðstefnur um útilíf og útinámSvíþjóð, Tékkland og Ástralía.Mikilvægt er að fylgjast með straumum og stefnu í útinámi. Góð leið til þess er að fara á ráðstefnur, lesa greinar og bækur.
Vanda flytur erindi um börn og náttúru. Erum við að ala upp börn með ást á jörðinni eða full ótta við hinn náttúrulega heim?
Myndbandsupptaka á vefnumNúna hægt að horfa og hlustaNú hefur upptaka af námsstefnunni verið gerð aðgengileg á vefnum. Það er því tilvalið fyrir þá sem misstu af námsstefnunni eða vilja rifja upp að skoða hana. Að læra úti, það er málið!Námsstefna um útinám tókst feykivelFimmtudaginn 15. maí var haldin námsstefna um útinám á Sauðárkróki. Um hundrað þátttakendur komu til þess að hlýða á fjölbreytt erindi um útinám og skólastarf og taka þátt í útieldun og umræðum. |
|